Jæja. Þetta hefur örugglega komið áður, mig allavega minnir það. En ég fór alltí einu að hugsa um þetta áðan.
Hvaða persóna úr bókunum, sem kom ekki fram í myndunum, saknar þú mest að hafa ekki séð ?

Ég persónulega sakna þess rosalega að hafa ekki séð Tuma Bumbandil. Hann er einn af mínum uppáhaldspersónum, og þar er ég líka að hugsa um með aðalpersónum. Hann einfaldlega gefur manni bros á vör :P Gamall krúttlegur kall sem birtist syngjandi og dansandi og talar í gátum og söng. Ekkert nema jákvætt í kringum hann.



Bætt við 1. mars 2007 - 22:37
Vegna þessa korks ákvað ég að ætla að gera grein um hann. En ákvað að líta á yfirlitið og athuga hvort það hefði nokkuð komið grein um hann nýlega, og sá að um hann var skrifað 28. nóvember þannig ég neyðist til að sleppa því. Ég finn mér þá aðra persónu til að skrifa um :)