Mig langar virkilega til að vita hvernig ég væri með permanent en þori ekki að kýla bara á það vegna þess að hárið mitt er náttúrulega rennislétt og ég tími ekki alveg að gefa það upp á bátinn nema liðir fari mér fullkomlega.

Ég hef reynt að krulla mig og flétta og aaallt til að reyna að finna smjörþefinn af því hvernig ég væri með permanent en það verður annað hvort of slöngulokkalegt eða beyglulegt.. HVAÐ get ég gert til að framkalla LIÐI, ekki of mikla en jú.. liði!?!?
ICEAVANA