Kunniði leiðir gegn baugum .. er með smá bauga sem væri gott að losna við, ekkert sem ég er að deyja yfir samt! takk ;) Fyrir utan svefnleysi sem gæti verið partur af þessu.
Hehe, ég hef aldrei heyrt um þetta með matskeiðarnar ;)
En já, augnkrem eru oft frekar dýr (enda viltu ekki eitthvað drasl þegar kemur að því að setja eitthvað kringum augun) …en það eru góð krem frá t.d. Chanel og Estée Lauder :) Svo ef þú vilt alveg virkilega gott krem sem er frekar dýrt (eitthvað yfir 15.000) þá er augnkremið frá Själ æææði :)
Hefðir getað bara gefið þér sjálfum álit eða bætt við þráðinn. Myndi meika meira sense heldur en að spyrja manneskju sem var ekki einu sinni að tala um það sem þú ert að spyrja að.
En, tana svona vaxtarræktargaurar sig ekki til að vöðvarnir og skorurnar sjáist betur? Held að það væri svipað með baugana, sæust kannski bara betur, meiri skuggi:)
ojj.. haha mer finnst tanaðir gaurar ekki spes :S hver gerir sér það að lyggja í ljósi í eh tíma til að skemma húðina og fá meiri líkur á krabbameini og eh bara til að verða brúnn? í staðin fyrir að fara í sund í sól og verða eðlilega brúnn? 8-)
nei, en maður þarf ekki einu sinni að fara í sólbað sko… ef maður fer bara í sund, líka á veturna, verður sólin/birtan miklu sterkari í vatninu því það endurspeglar hana margfalt…svo maður yrði brúnn ;)
Að sofa lítið og að drekka kaffi eða te getur orðið til þess að þú fáir meiri bauga.
Að láta 2 teskeiðar í ísskápinn er fínt og svo halda þeim undir augunum í nokkrar sekúntur um morgunin hjálpar ef þú ert með bólgin augu eða bauga.
Einnig eru ávextir eins og melóna, appelsína jarðaber og bláber sögð hafa góð áhrif.
EF þú ert að leita að góðum baugafelara þá geturðu farið í lyfju í kringlunni þar sem þeir selja bobby brown snyrtivörur. Þar geturðu keypt Eye Brightener. Ein lítil dolla endist ekkert smá og mér fannst það virka eins og draumur. Enda er þessi vara oft uppseld í Englandi og víða vegna góðrar umfjöllunar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..