Ég fékk mér svona úti á Spáni…fór mjöög illa!
Ég var voða ánægð, fékk mér eitthvað kínverskt tákn…svo fóru að myndast hvítar bólur á þessu og ég alveg skíthrædd, fór til læknis og hann sagði að þetta væri ofnæmi og gaf mér eitthvað til að bera á það (sem virkaði ekki).
Svo þegar ég kom til landsins aftur þá fór ég aftur til læknis, hann gaf mér penicillin (eða hvernig sem það er skrifað) og ég hafði auðvitað ofnæmi fyrir því líka!…þá varð ég rauð um allan líkamann í c.a. mánuð eftir á og þegar mér loksins batnaði þá var tattúið alveg horfið fyrir utan hvítt ör…
Sem betur fer sést örið ekki lengur, en samt þvílíkt vesen :/