Ég heyrði einhvestaðar fyrir langa löngu síðan að það væri til sjampó sem gerði hárið meira krullaðara, allavega þannig að krullurnar eða liðirnir yrðu fallegir.

Ég man bara ekki hvað þetta sjampó hét eða hvort það væru til margar svona tegundir.

Ég er nefnilega með svona hár sem er ansi liðað en það verður alltaf svo ótrúlega ljótt eftir að ég hef þvegið það. Það stendur bara alltaf út í loftið og mér finnst liðirnir ekki fá að njóta sýn.

Þannig ef það er einhver þarna úti sem getur bent mér á rétta gripinn til þess að gera hárið á mér fallegra þá yrði ég ansi þakklát;)