Sumarið loksins komið og allir leggja sig extra mikið fram við að líta sem best út. Göngutúrar, sundferðir, ræktin, kaffihús, djammið -það er allt að gerast!

Mikið hefur verið rætt um allar hliðar tísku hér á huga. Allt frá nöglum til naflalokka, sem og mikil umræða um tískuvöruverslanir.

Samt sem áður hefur eitt farið algjörlega framhjá mér.

Hvar fást flott óléttuföt á Íslandi?

Veit ekki með aðra, en ekki væri ég til í að ganga um í strigapokum alveg kasólétt.