Halló, ég var að pæla hvort þig tískugúrúarnir gætuð ekki hjálpað mér aðeins…^_^

En fyrst: Vita ekki flestir hérna hvað Manga er? :) Ef ekki, þá er það japanskur teiknistíll, svona eiginlega eins og Pokémon en það eru til mun vandaðri útgáfur af því. Til dæmis hér: http://www.japanime.com/imagevote/gallintro001.jpg

Málið er, að ég hef tvisvar sinnum í sumar séð stelpur í síðerma bol með mjög flottri manga-stelpu framan á. Mig langar svo í svona bol! Búin að kíkja í margar búðir, en bara finn þetta ekki. Er einhver hér sem veit hvar þetta fæst, eða er með hugmynd um hvar þetta gæti hugsanlega fæst? Það væri mjög vel þegið :D