Ég heiti Eva og er með síðuna folk.is/model_me . Ég fékk email frá einni stelpu sem er fastagestur á síðunni minni og vildi endilega vara við manni sem hún fór til undir því yfirskyni að það ætti að taka af henni andlitsmyndir. Hún skrifaði mér email og sagði mér frá því hvað gerðist.

“Hann byrjaði á því að bjóða mér freyðivín, reyndi að fá mig til að fara úr að ofan og að fara í sexý stellingar þegar hann sagði upprunalega að hann vildi bara taka af mér nokkrar andlitsmyndir. En hann sýndi mér samt allar myndirnar því hann tók þær á digital vél, svo ég gat fengið hann til að stroka út allar myndir sér mér þótti ljótar eða asnalegar.
Þegar ég ætlaði að fara þá reyndi hann að fá mig til að vera lengur, bauð mér aftur eitthvað að drekka og fór að tala um nektarmyndir. Sagðist bara vilja taka ”artistic“ nektarmyndir en þegar hann var að tala um það roðnaði hann og varð svolítið æstur.”

Þessi maður auglýsti eftir módelum á þriðjudag í síðustu viku. Hann er greinilega hættulegur og ég vil biðja allar stelpur að passa sig á honum. Ég vil líka hvetja allar stelpur sem eru á leiðinni í myndatökur í Skipholti að senda mér email (ég er með upplýsingar um hvernig hann lýtur út og hvað hann heitir sem ég set ekki hér) til að athuga hvort að það sé nokkuð hann. Fariði varlega.

Eva.

www.folk.is/model_me
“Fögur kona gleður augað.