Eftirfarandi grein kemur fram á síðunni http://kaninka.net/stefan/




Ærsladraugur á þjóðveginum


Sturla Jónsson hefur verið mikið í fréttum upp á síðkastið. Færri vita að hann er áhugamaður um yfirskilvitleg fyrirbæri og hefur orðið fyrir árásum ærsladrauga eins og lesa má um hér.

Í viðtalinu er lýst sérstæðu atviki sem Sturla hefur lent í við akstur:

Eitt sinn þegar ég var að keyra bíl féll á mig eins konar stjarfi og ég gat mig hvergi hreyft. Skyndilega sveiflaðist ég út úr líkamanum, aftur í bílinn og síðan út undir beran himininn. Bíllinn varð náttúrlega stjórnlaus og fór á næsta bíl. Úr þessu varð síðan fjögurra bíla árekstur. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig mér leið þegar lögreglan kom á vettvang og vildi fá skýringu á þessu atviki.

Þetta er maðurinn sem leiðir baráttu atvinnubílstjóra fyrir því að skerða hvíldartímann!

Myndu þó einhverjir efasemdarmenn fremur rekja fjögurra bíla áreksturinn til ofþreytu en ærsladrauga…




————————————————————————————————–








I rest my case.
[i] "Snúinn aftur!" ...aftur[/i] - [b] ip tölu bann er sori..[/b] <[why, hello thar]