Mér finnst nafnið Aníta sjúklega skinkulegt nafn, afhverju heita allar skinkur Aníta eða þúst Aníka?
Afhverju er hvítlauktsbrauð svona gott?
Afhverju horfir fólk á formúlu?
Ohh, ég þoli ekki þegar hjartapúði sem er hliðin á krakka sem er hliðin á hundi með gleraugu!
Ég þoli ekki heldur að vera ber að ofan að borða þúst ristaðbrauð og það kemur mylsna á mig. Mylsna á heima í rusli, er ég þá rusl? Ég ber samt sömu virðingu fyrir þeim frumeindum/sameindum sem eru í rusli og þeim sem byggja mig. Þúst ég geri ekki á milli sameinda en samt geri ég á milli hluta. Hvað er það sem lætur manneskju hugsa um hluti í samhengi? Þúst hver er munurinn á blómi og fokking teningi, þúst í fokking grunninn? Báðir hlutirnir eru búnir til úr frumeindum. Þúst afhverju eru rónar taldir minna virði heldur en þúst venjulegur borgari? Eru ekki allir hlutir byggðir úr eindum, og ég skil ekki afhverju maður setur hóp af eindum í eitthvað samhengi og gerir síðan upp á milli þeirra! Þúst pensill er yfirleitt trjástubbur með hárum sem fest eru með lími og járni. Hvað er það sem segir manni að þetta sé pensill skiluru. Ohh mannshugurinn og já hugurinn almennt er svo fokking magnað fyrirbæri að ég væri til að giftast honum.

Nei samt í alvöru, þúst afhverju horfir fólk á formúlu?