Fór á powersýningu í dolby 3d í háskólabíó þannig skoðun mín er mynduð út frá hæstu mögulegu gæðum.

Eftir að hafa vandlega íhugað þessa mynd út frá öllum mögulegum sjónarmiðum hef ég ákveðið að gefa henni 4 af 10 í mesta lagi.


Er svo viss um mat mitt að ég sé varla ástæðu til að styðja hana, fólk hlýtur að sjá hvað ég er að meina þegar ég segi að þessi
söguþráður, tónlistin, heimurinn/umgjörðin, karakterþróun, karaktersköpun, handritið og klippingin hafi verið til háborinnar skammar.
Það eina sem þessi mynd hafði var tækni, 300-500 milljón dollara af henni. Miðað við hvað hún kostaði var ekki hægt að búast við minna en
meistaralega gerðu augnakonfekti en það var þessi mynd því miður ekki einu sinni og féll þar af leiðandi um sjálfan sig í þeim eina tilgang sem hún hafði.

Kær kveðja, Nerull.

PS: Mæli samt sem áður með því að allir horfi á þessa mynd og myndi sér sjálfstæða skoðun á þessu hroðvirki.