Ég spyr: Hví eru svona margir sem sleikja á sér fingurna áður en þeir fletta blaðinu, opna plastpoka etc etc.. ?? Þetta er einn versti ósiður sem ég veit! Fer ekkert smá mikið í taugarnar á mér þegar ég er að afgreiða fólk og það SLEIKIR Á SÉR PUTTANA áður en það sækir pening í veskið sitt eða jafnvel kortið sitt.. Svona í alvöru talað það er ekki svo erfitt að ná peningum í sundur og er ekki bara erfiðara að ná korinu ef það er FKN BLAUTT EFTIR MUNNVATNIÐ ÚR ÞÉR? fojj og svo þarf ég að taka á móti þessu bleghh..


Ég þakka þau sem hlýddu.