er að fara að fá að eyða einhverjum marktækum tíma með dýrum í sumar? Bara gæludýr, hvalaskoðun, húsdýragarðurinn, húsdýr í sveit eða bara eitthvað?

Ég varð allavega svo heppinn að fá vinnu á sveitabæ, kom einmitt í miðjan sauðburð þannig að ég er búinn að fá að draga þónokkuð af lömbum út úr kindum og allt sem kemur á eftir því. Það eru þar að auki þrír hundar, kálfur sem sleikir allt sem hann kemst í snertingu við, tvö folöld, endalaust af gæsum og gæsarungum úti í móa, andafjölskylda niður í skurði sem kafar sífellt þegar ég labbn framhjá og endalaust af pirruðum kríum. Svo eitthvað sé nefnt.

Allavega varð mér hugsað til þess að það sé örugglega hellingur af fólki sem hefur ekki fengið eða fær varla neitt að komast í snertingu við dýr fyrir utan eitt og eitt gæludýr og heimsókn í húsdýragarðinn og það er feitt að missa út úr að mínu mati