skooo.. fyrir næstum 3 vikum var ball í skólanum mínum og ég var bara vel hress, en man samt sem áður eftir öllu kvöldinu, nema hvað, þegar ég vaknaði daginn eftir ballið þá var ég alveg að deyja í rófubeininu. og fannst það rosalega skrítið þar sem ég mundi ekkert eftir að hafa verið að detta neitt eða e-ð svoleiðis rugl. svo hélt ég bara að þetta myndi lagast og fara með tímanum, en nei nei núna 3 vikum seinna er ég ennþá að drepast !

hvað er hægt að gera ? getur læknir gert e-ð við þessu, og vitiði hvað er hægt að gerast við rófubeinið, hvort það getur brotnað, tognað, bólgnað eða hvað það er ?

einhver ráð ?