Ókei..þannig er mál með vexti að ég var einu sinni oft að hanga með gaur..rétt fyrir jól, eða snemma í okt. held ég.. þá -lánaði- ég þessum gaur webcamið mitt..okei alltí lagi með það..

Svo þegar skólinn byrjaði aftur eftir jólafrí, þá var ég farin að vilja fá webcamið mitt aftur..við vorum ekkert búin að tala neitt mikið saman frá okt-jan..hann er þá búinn að vera með þetta í laangan tíma..

Ég talaði við hann á msn rétt áður en að skólinn byrjaði og hann sagðist ætla láta mig hafa webcamið næst þegar hann sæi mig..okei..ég var sátt með það..

Svo kom webcamið aldrei..ég beið og ég beið og beið..hann var hættur að láta sjá sig í matartímum og alveg hættur að tala við mig..ekki það að ég hafi einhvern meiri áhuga á að tala við hann..en allavegana..ég byrja að senda honum sms og fer að byðja um webcamið aftur..hann svarar ekki neinum af sms-unum..

Svo einn daginn í skólanum þá sagði vinkona mín mér (sem er líka vinkona hans..) að fara og tala við hann..(hún var búin að reyna að fá hann til að tala við mig en hann tók það ekki í mál..) Þessi vinkoná mín vissi hvar hann var og ég fór þangað.

Þegar ég kom þangað þá leit hann ekki einu sinni á mig á meðan ég var að tala við hann..og sagan um webcamið breyttist allavegana 3 sinnum meðan ég var að tala við hann..
Fyrst þá var hún víst týnd.. svo var hún komin til Ísafjarðar til bróðir hans..svo alltí einu átti ég að hafa gefið honum webcamið..og ég náttúrulega alveg hissa á þessu..og sagði við hann að ef e-ð hefur komið fyrir webcamið þá fengi hann bara að borga það..ég bauð honum það að borga þetta í hlutum, byrja eftir mánaðarmót og hafa þetta eins og hann vildi, svo lengi sem hann myndi borga rétta upphæð..

Webcamið kostar semsagt 5.990..ég man geðveikt vel hvað þa kostaði af því að ég var búin að vera að safna fyrir því geðveikt lengi..var ekki í vinnu á þessum tíma og e-ð..var síðan geðveikt ánægð að fá webcam..loksins..

Svo núna í gær þá sendi hann sms og sagði fyrirgefðu við mig..>.< Hann er ekki ennþá búinn að skila webcaminu eða borga það..

Og þessi manneskja hefur líka verið -Geðveikt- ömurleg við mig áður..ég sé eftir því að hafa talað við hann in the first place..

Allavegna..hvað get ég gert?

Vil helst ekki fara með þetta í lögregluna..þó svo að þetta sé nú ekki mikill peningur, þá er þetta ennþá þjófnaður..og það síðasta sem ég vil er að hann komist upp með þetta..hann á það svo ekki skilið..!!
Wheee!