Ég er glötuð já.

Af hverju?

Af því að ég týndi bíllyklunum mínum í gær á djamminu. Alveg eins og ég gerði í janúar og þá voru þeir týndir í 2 vikur..

Og til að fullkomna þetta, þá var ég búin að merkja þá og ætla ekki að lenda í þessu aftur, en í síðustu viku datt merkimiðinn af og ég gleymdi að laga það…svo þeir eru ekki merktir >.<

Og ég var að kaupa bílinn og gaurarnir á bílasölunni ætluðu að láta gera aukalykla í síðustu viku þegar ég lét skipta um tímareim, en ég fékk þá aldrei..

Og af hverju var ég að setja lyklana í töskuna mína? Af því að ég er fáviti

Heimurinn er á móti mér

Og já, ég ætla að skilja við sjálfa mig

Hver fær bílinn? *drumtiss

Ég er piiirruð >:(

~Orkamjás sem er glötuð manneskja