Ég veit eiginlega ekki alveg á hvaða áhugamál ég hefði átt að senda þennan kork inn, en ég veðjaði á þennan. (vona að það hafi ekki verið rangt hjá mér, annars bið ég ykkur að fyrirgefa mér.

Ég ætlaði semsagt að spyrjast fyrir um sjálfboðastörf. Ég er að velta því fyrir mér að fara til Indlands í gegnum exit.is eftir útskrift (útskrifast jól 2008). Mig langaði bara að vita hvort einhver hérna hefði einhverja reynslu af einhversskonar sjálfboðastörfum? Og þá kannski á vegum exit.is (eða því sem tengist)?

Allavega, ég þakka fyrir öll svör sem koma :):)

Bætt við 23. september 2007 - 15:18
Gleymdi að bæta því við að ég er að meina sjálfboðastarf í útlöndum. (ég er að hugsa um að fara til Indlands.)
Shadows will never see the sun