Áður en að ég byrja að skrifa niður hugsanir mínar, þá vil ég vara fólk við að þessi korkur verður fullur af órökstuddum alhæfingum, leiðinlegu nöldri og skítkasti. Ef þér líkar ekki við að láta ausa yfir þig vitleysu á internetinu, þá ættirðu kannski ekki að vera á hugi.is til að byrja með.

Lestu þennan kork með fyrirvara um að mér er ekki endilega alvara, heldur hef ég bara gaman af því að skrifa.



Ókei, svo siggi litli ákveður að heilinn í honum sé ekki fær um að taka sjálfstæðar ákvarðanir í sambandi við persónuleikann sinn, útlit sitt og skoðanir. Ekkert mál siggi minn, það eru aðrir búnir að ákveða það fyrir þig!

Fílarðu að láta alla halda að þú sért alltaf að þrusa í kellingar þó að þín næmasta kynlífsreinsla sé að runka þér á givemepink.com? Skutlaðu þér þá í kringluna og kauptu þér bleika skyrtu, svart vesti, ársbyrgðir af d:fi í hárið og kreatíndunk til að stilla upp á náttborðinu við hliðina á fimm kílóa lóðunum þínum. Engar kellingar enn? Taktu þá nokkrar myspace myndir af þér berum að ofan og sendu á hugi.is/heilsa, konur fíla menn með sixpack en engan heila, það vita allir. Vertu viss um að skilja email adressuna þína eftir. Og láttu alla halda að þú sért íþróttatýpan með því að hafa emailið þitt ronaldinho@hotmail.com eða eitthvað álíka þó þú hafir hætt í boltanum í sjöunda bekk til að hafa meiri tíma á msn.

Kannski er þetta ekki alveg fyrir þig, eða hvað siggi minn?

Ekkert mál, fersk úr kolaportinu er gothtískan ísköld og kolniðasvört handa þér.
Langar þig að vera batman alla daga, ekki bara á öskudaginn?
Labbaðu þá hægt með hangandi höfði niður í hókus pókus og kauptu þér gaddagrifflur.
Ef þú býrð á íslandi og ert goth, Siggi minn, þá eru mestar líkur á að þú sért álíka þungur og Golf Gti bíllinn með spoilerkitinu og dökku rúðunum sem Hnakka-Siggi hér fyrir ofan lét pabba sinn kaupa fyrir sig. Þessvegna verður frekar erfitt að fá föt í þinni stærð. Skelltu þér bara í seglagerð ægis og láttu þá sauma á þig einn leðurfrakka, ekki til að fá athygli út á hann, nei, heldur til að láta í ljós þá skoðun að þú sért öðruvísi en allir hinir, fyrir utan alla fjóra milljón vini þína sem eru búnir að adda þér sem vin á www.vampirefreaks.com.


Ekki nógu morbid? Eða langar þig kannski að ganga enn lengra, og vera jafn sérstakur og Goth-Siggi, EN SAMT fá kellingar eins og Hnakka-Siggi?

Ekkert mál Siggi my man, www.darkstarlings.com býður þér upp á dásamlegt kombó. Eyddu bara öllum númerunum úr símanum þínum og settu sjálfsmorðshjálparlínuna inn í staðinn.

Emo. Hver hefði trúað því að þú gætir verið jafn fornrómantískur og Goth-Siggi og jafn heilalaus og Hnakka-Siggi í einu?
Er eilíf sorg í hjarta þér? Klipptu á þig topp og fáðu þér myspace. Þú ert að verða Emo, Siggi minn.
Afhverju að rífa sig upp úr vonleysinu þegar þú getur fengið 12 ára stelpur frá fáskrúðsfirði til að hözzla þig á myspace? Emo liðið er til um allt land maður, skrifaðu bara nokkur ljóð og settu á blog.central.is. Því að það skiptir engu máli þó þú hafir ekki einu sinni farið lengra úr bænum en upp í mosó, þú ert samt í nánu sambandi við náttúruna og tilfinningar lífsins.


Siggi minn, ég skal segja þér frá fleiri stefnum sem þú getur tekið í lífinu seinna, en ég er búinn með orkuna til að skíta yfir allt og alla í bili.

Later.


Bætt við 18. september 2007 - 12:23
Þess má til gamans geta að hvorki stjórnendur á /tilveran, né /lífstíll vildu samþykkja þetta sem grein.
Vó hvar er ég?