Jæja ég vissi ekkert hvar ég ætti að spyrja um þetta. En ég vildi bara forvitnast um hvort að eitthver hérna vissi hvort að það er hægt að verða “sjálfboðaliði” á Barnaspítala Hringsins, og þá er ég að meina að leika við krakkana, lesa fyrir þau og svoleiðis? Fyrir engan pening. Ég elska börn og finnst ekkert meira gaman en að leika við þau og tala við þau. Ég veit ekki hvort að þetta sé hægt, ég hef verið að hugsa um þetta í smá tíma. Ég er náttúrulega 17 ára og verð 18 á næsta ári. Þetta er kannski asnaleg spurning en það er allt í lagi að forvitnast um þetta [: