Var að fletta í gegn um fréttarblaðið og sá þorpsfíflið Gunnar Þorsteinsson (Gunnar í krossinum) nánar tiltekið bls 16 fyrir ykkur sem að viljið skoða, ég ætla að stelast til þess að birta þennan sjónarhól þar sem að fréttablaðið er jú ókeypis, athugið fyrirsögnina hún þótti mér afar skemmtileg!

Mikil hræsni í umræðunni.

“Ég er á þeirri skoðun að svona menn hafi fyrirgert rétti sínum til að lifa.” segir Gunnar Þorsteinsson í Krossinum, spurður um skoðun sína á því að krafist hafi verið dauðarefsingar yfir Saddam Hussein. "Eins og maðurinn sáir þannig mun hann og upp skera. Það er erfitt að draga línur og dauðarefsingar eru ekki neitt uppáhaldsmál hjá mér en ég tel að samfélagið hafi þennan rétt og þurfi að beita honum. Ef honum væri beitt til dæmis hér á Íslandi eins og er gert í Bandaríkjunum sums staðar, þá væri það sirka ein aftaka á öld hér á landi. Það þarf að beita þessu gríðarlega sparlega en ég tel að samfélagið þurfi að hafa þetta úrræði fyrir menn sem brjóta nógu alvarlega af sér. Það sem særir okkur dýpst, eða mig að minnsta kosti, er þegar menn misnota börn, jafnvel ítrekað. Ég sé ekki tilganginn með að halda svoleiðis mönnum í lokuðum klefum.
Menn taka andköf þegar talað er um dauðarefsingar en ef Schirinowski kæmi með 200 manna her og réðist á Ísland þá þætti okkur alveg sjálfsagt að brytja þá niður. Hræsnin er svo mikil í þessum viðhorfum. Saddam Hussein framdi þjóðarmorð á Kúrdum og líka á eigin fólki, þar sem hann útrýmdi heilu þorpunum af fullkomnu miskunnarleysi. Ég held að samfélagið hljóti að vera sammála því að hann hafi fyrirgert rétti sínum til að lifa.

Jæja Gunnar minn, sagði einhver hræsni ? Segir ekki 5 boðorðið í sömu heilögu bók og að ég hafi nánast fyrirgert rétti mínum til þess að lifa með því að vera samkynhneigður að maður eigi ekki að deyða neinn, það talar enginn um neinar undantekningar í málum Saddams Husseins eða barnaníðinga svo að ég sjái ?

Það er ástæða fyrir því að höggstokkurinn og exin sem að Agnes og Friðrik voru höggvin með er geymd á þjóðminjasafninu, dauðarefsing er röng og það vita allir sem að náð hafa andlegum þroska, og væntanlega líka þeir sem að lesið hafa helvítis biblíuna..

Dæmið og þér munuð dæmdir verða Gunnar, þér eruð greinilega orðnir það heilagir að þér eruð farnir að geta dæmt fólk til dauða opinberlega!

Kv Pétur sem að er farinn með Gunnari í krossinum norður á þrístapa og byrjaður að hlaða aftökupall til þess að taka af lífi fólk sem að Gunnari finst óæskilegt í samfélagið þ.m.t kynvillinga eins og mig kanski ?

Gunnar ÞÚ ert hræsnarinn í þessari grein!