Ég hef ekki gert þetta áður og hélt að þyrfti aldrei að gera þetta en svo gerðist það og núna spyr ég:

Ef einhver á þrjá (3) miða á Belle & Sebastian á tónleikana sem verða haldnir á Borgarfirði Eystra þann 29. júlí nk. og er ekki fær um að getað notað þá af einhverjum ástæðum þá má sá hinn sami endilega tala við mig!

Við munum halda samningafund um verð, ég er tilbúinn að borga frekar ásættanlega upphæð fyrir miðana!

Eins og stendur eru 2 sæti laus austur ef svo skemmtilega vill til að einhver sem á auka miða sem vill selja mér þá en hefur ekki far á tónleikana… :-P

Endilega notaðu einkaskilaboð til að koma þessu ferli af stað!

Ég veit að þetta er langsótt og ég veit ekki einu sinni hvort þetta hafi heppnast hjá einhverjum en ég geri þetta núna með sár í hjarta vegna þess að í dag voru miðarnir á báða tónleikana uppseldir og ég var svo vitlaus að kaupa ekki sem fyrst og fyrr en síðar þarf ég að færa tveimur einstaklingum þær sorgarfréttir að við höfum ekki miða á það sem gerir líf okkar að því sem það er…

Ég held í vonina…

Þakkir…