Vá sko, þannig er mál með vexti að ég “átti” Ecco sandala. Geðveikt flottir og góðir. Var bara ekki í þannig vinnu að ég gæti verið í þeim í þeirri vinnu. En svo byrjaði ég um daginn í annari vinnu og þá datt mér það í hug að það væri allveg upplagt að nota Ecco sandalana þar. En nei þá spyr ég mömmu hvar þeir séu og þá segist hún vera löngu búin að henda þeim vegna þess að hún hélt að þeir væru of litlir á mig. Vá sko, skil þetta bara ekki þetta voru Ecco sandalar af flottustu gerð og kosta um 10.000 kall og það er búið að henda þeim og þeir voru nánast allveg ónotaðir.

Mömmur ættu ekki endalaust að vera að henda einhverju sem þeir vita ekki hvort að maður vilji halda uppá, frekar að spyrja áður.
Cinemeccanica