Ég er ekki manneskja sem að æsi mig yfir hverju sem er, en þegar að ég rekst á svona vefsíður eins og www.kirkju.net get ég ekki orða bundist. Málfrelsið er eitt af því mikilvægasta sem að við eigum og finst mér að við eigum að virða það í hvívetna, sbr vefsíðunni sem að ég stend fyrir. En þegar að einhver gerist svo viðurstyggilega djarfur að setja grein sem þessa http://www.kirkju.net/index.php/jon/2006/02/21/p206 get ég ekki orða bundist, að halda því fram að samkynhneigðir séu líklegri en aðrir til þess að fremja kynferðisbrot gegn sínum eigin börnum finst mér hreinast sagt glæpur. Þætti mér réttast að farið yrði með svona fólk eitthvert niður á torg og hýða það, þetta er ekkert nema rógburður, meðyrði og kjaftæði sem að þarna er sagt.

Þessir menn sem að standa að þessari vefsíðu eiga eftir að standa frammi fyrir æðri mætti og fá það óþvegið, mér finst alltaf áhugavert þegar að kirkjunar menn draga almætti guðs síns í efa með því að segja að hann skapi eitthvað sem að er vitlaust. Hvað þá þegar að þessir menn halda að þeir séu betur í stakk búnir til þess að taka á þessu “vandamáli” heldur en guð sjálfur.

Kirkjan er bara peningastofnun og ekkert annað! Rétta orðið fyrir kirkju væri sennilega bara Mafía.

Að aum stofnun eins og “þjóð”kirkjan sé að hindra það að mannréttindi og sjálfsagður hlutur eins og hjónaband samkynhneigðra komist í gegn er ekki eitthvað sem að á að vera að ske árið 2006.

Jón Valur iðrastu gjörða þinna og skammastu þín!