Ég á ekki eitt einasta orð eftir að hafa horft á ísland í dag 10 mars 2006, nú er í umræðunni líkamsleitir á skemmtistöðum, er ekki allt í lagi með fólk ? Ég bara spyr ástæðan sem gefin er upp fyrir þessu dæmi öllu saman er m.a hnífstungumálið í Tryggvagötu, semsagt ef að einn maður er stungin, utandyra nota bene þá allt í einu réttlætir það líkamsleit á þeim þúsundum einstaklinga sem að fara í bæinn í hverjum mánuði og komast lífs af. Svo að það sé alveg á hreinu og kanski bara ágætt að skella því á prent til að koma í veg fyrir allann misskilning þá er ég ekki að taka upp hanskann fyrir þessa ógæfusömu einstaklinga sem að sjá sér ekki annað fært í stöðunni en að stinga samborgara sína. Í okkar augum erum við alveg ofboðslega stór þjóð og erum að miða okkur við lönd þar sem að íbúa fjöldinn skiptir tugum milljóna eins og t.d. BNA, ég myndi kanski skilja líkamsleit á skemmtistöðum ef að hnífstungu og morðmálunum myndu skipta tugum, en á meðan það er tveggja vikna fréttaefni ef að einhver er drepin eða stungin og þúsundir manna geta verið í bænum í sátt og samlindi þá held ég að líkamsleit á skemmtistöðum á litla sæta íslandi sé svona frekar hallærislegt.

Menn fara vopnaðir í bæinn segir Geir Jón ég segji (og tel ég mig hafa bara ágætis reynslu af bænum) þetta er tilbúið vandamál sem að paranoid heimavinnandi læknadópandi húsmæður í vesturbænum sem að hafa ekkert betra við tímann að gera heldur en að blása upp einhver nokkur kjaftshögg upp í nauðganir og morð, þið vitið alveg hvaða týpur ég er að tala um í guðana bænum ekki fara að taka orð mín úr samhengi og snúa þessu upp í einhverja árás á vesturbæinn eða heimavinnandi fólk, og nei ég tel mig ekki hafa meiri reynslu af bænum heldur en Geir Jón en hinsvegar hef ég það fram yfir Geir að ég er að skemmta mér í bænum sem hlutlaus aðilli, þegar hann fer í útköll þá er verið að kalla hann út vegna þess að einhver var lamin eða stungin það segir sig alveg sjálft að lögreglan er yfirleitt ekki kölluð út af ástæðulausu.

Líka þegar að málin eru skoðuð aðeins betur þá eru yfirleitt þessi svakalegu mál ekki eins svakaleg og ætla mætti, þú lest kanski í DV einhverja svaka útfærslu og segir næsta manni næsti maður betrumbætir aðeins söguna og svo koll af kolli, hver man ekki eftir Eldborg ég man allavega eftir þessum 3 sem að voru drepnir þar eða nei það var einhver sem að laug því það var semsagt enginn drepinn bara stungin með tjaldhæl (frétti ég viku seinna) ég ákvað að skoða aðeins málið betur og hey það var einhver lamin með tjaldsúlu og ég er ekkert að grínast með þetta Gróa á leiti stóð sig bara andskoti vel þarna, náði að hræða líftóruna úr mörgum á hátíðinni og fékk örugglega að borða í viku fyrir þessa líka AÐEINS íktu útgáfu. Niðurstaðan var semsagt þegar að búið var að ljúga af nánast öllum á svæðinu að búið væri að myrða 3 manneskjur þá var sannleikurinn sá að það var strákur lamin með tjaldsúlu, þetta er það sem að gerist með mikið af þessum sögum jafnvel nánast öllum, við búum ekki í Harlem það á ekki að þurfa að gera líkamsleit á fólki áður en það fer inn á skemmtistaði það er bara veist of tæm, og hvaða vandamál erum við að leysa með þessu lengja tímann sem að við bíðum í biðröðinni er eina vandamálið sem að verið er að búa til.

Hvað er vopn ? Erum við að tala um hnífa, rafstuðtæki, byssur jafnvel ? Það er nefnilega ekki hægt að nota neitt annað til að vinna fólki mein, þetta er svo heimskulegt ég get alveg keypt mér bjór í flösku inni á stað mölvað flöskuna og drepið einhvern með henni, ég efast um að einhver á barnum myndi hika við að lána mér skæri ef að ég finn nógu góða afsökun síðan tek ég skærin og sting einhvern, ég get kýlt þig, nauðgað þér möguleikarnir eru endalausir og þetta er bara mesta vitleysa sem að ég hef nokkurntíma heyrt um og þetta er umræða sem að við skulum kæfa í fæðingu, ekki nenni ég að láta einhvern sveittan dyravörð káfa á mér og bíða lengi í biðröð út af einhverju hnífstungu máli í febrúar í hitti fyrra (hvernig sem það er nú skrifað)

En núna held ég að ég sé búin að nöldra alveg ágætlega um þetta og ég efast um að einhver hafi lesið þetta allt en ég bara varð að fá smá útrás.

p.s ég veit ég tala í hringi :)