Ég var að skoða þráðinn þar sem spurt var um innihald vasa og þá datt mér í hug að spyrja út í innihald veskja.

Sjálfur er ég með lítið brúnt leðurveski. í veskinu er ég með: Ökuskírteini, debetkort, blóðflokkakort, tvö skólaskírteini, tvö bókasafnskort, tvö skírteini frá Landsbjörgu, afsláttarkort frá stéttarfélaginu, líffæragjafakort, afsláttarkort í Útivist og Sport, félagskort í Ferðaklúbbinn 4X4, vildarkort frá Shell einn miða í Hvalfjarðargöngin og einn smokk.
“Og hana nú” sagði graða hænan.