Ég var að tala við félaga minn áðan sem vinnur í tónlistarbransanum og hefur góð sambönd í þeim bransa.

Hann sagði mér góðvinur sinn (sem er í einni þekktust popphljómsveit Íslands - nefni engin nöfn) staðfesti að Ragnheiður Hansen, sem flutti m.a. inn Metallica í fyrra, er búin að skrifa undir samning við bæði U2 og Rolling Stones um að koma hingað til lands á næsta ári og halda risatónleika í Egilshöll.

Þetta er hins vegar ekki orðið opinbert en sagan segir að þetta sé staðfest og það frá góðum heimildarmönnum. Ég kaupi það ekki dýrara en ég sel það, engu að síður er þetta magnað ef þetta er satt!
Lífið gengur út á að vera númer 1, ekki númer 2.