Sko…

Hvernig væri að framkvæma smá tilraun. Við setjum einstakling inní herbergi þar sem ekkert er, nema stóll, borð og tveir kaktusar. Svo, á svona 10-15 mínútna fresti þá fær einstaklingurinn bjór, gildir einu hvaða tegund það er, en verður alltaf að fá sömu tegundina. Inn á milli, fær einstaklingurinn skot, gildir einu hvaða tegund það er, en verður þó að vera sama tegund. Svo þegar líður á tilraunina þá verður einstaklingurinn að sjálfsögðu drukknari og drukknari.

Gaman væri að sjá hvað myndi gerast!

Myndi einstaklingurinn sofna eða myndi hann hafast eitthvað við þessa tvo kaktusa sem hann er með þarna inni í herberginu?

Ég er með tvær ályktanir á þessu máli:

1. Einstaklingurinn gerir sér grein fyrir því að kaktusarnir séu þarna til staðar, þeir eru raunverulegir og þeir stinga. Loks og einstaklingurinn gerir sér grein fyrir því að kaktusarnir stinga þá verður hann reiður og stígur oná báða kaktusana og drepur þá. En þá fer hann að gráta og sér eftir þessu athæfi, hann ætlaði ekki að gera þetta. Hann að lokum grætur sig í svefn.

2. Einstaklingurinn sofnar án þess að hafast eitthvað við kaktusana.

En í báðum tilvikum þá vitum við eitt, einstaklingurinn er þarna af fúsum og frjálsum vilja.