Viðræðum samninganefnda Félags grunnskólakennara og Launanefndar sveitarféalga var slitið um klukkan 21:30 í kvöld þar sem ljóst var að of mikið bar í milli samningsaðila. Var ákveðið að boða til nýs fundar á fimmtudagsmorgun. Er því ljóst að boðað verkfall grunnskólakennara hefst í fyrramálið. Verkfallið nær til um 45 þúsund grunnskólabarna

Heimildir: www.mbl.is