Milli kl. 10 og 11 í fyrramálið, 9. júlí efna íslenskir Falun Gong iðkendur til friðsamlegrar mótmælastöðu fyrir framan kínverska sendiráðið á Víðimel.

Með þessu er ekki verið að mótmæla opinberri heimsókn Wang Zhaoquo varaforseta
kínverska þingsins, né íslenskum eða kínverskum yfirvöldum sem slíkum,
heldur að minna á að enn fara fram ofsóknir á hendur saklausu fólki í
Kína, sem við skorum á kínverska ráðamenn að taki nú þegar enda og að
ábyrgðarmenn þeirra mannréttindabrota verði dregnir fyrir dóm.

Blaðamannafundur kl. 11. í fyrramálið á sama stað.

Við hvetjum alla sem hafa áhuga að mæta