Eins og kannski einhverjir hér vita þá var hræðilegt slys í Kaupmannahöfn aðfaranótt laugardagsins 29. nóvember um kl. 3:20. Þar lést snögglega ungur strákur, Atli Thor Birgisson, 19 ára gamall er hann varð fyrir lest. Ég þekkti hann mjög vel, hann var einn af mínum nánustu og bestu vinum og ég get varla lýst því í orðum hversu yndislegur hann var. Hjarta mitt er brostið og síðan ég frétti þetta hef ég verið í algjöru sjokki. Ég og restin af vinahópnum höfum eytt dágóðum tíma með fjölskyldu hans og einnig hvert með öðru til þess að reyna að fá einhvern styrk út úr þessari endalausu, djúpu sorg. Ég vildi bara gefa ykkur upp heimasíðu sem var sett upp til minningar um Atla, og hvort sem þið þekktuð hann eða ekki þá er alveg þess virði að skoða hana. Slóðin er: www.atli.himself.dk