Það var brotist inní bílinn minn, hliðarrúða brotin, þar sem hann stóð í krimmagötunni Unufelli síðustu nótt, og stolið eftirtöldu:

* Klinki, sennilega um 300 krónum + einum 500 kalli = ca 800 kr.
* Einum Marlbaro pakka
* Sólgleraugum með bláu gleri.
* Dökkblárri flíspeysu merktri 66°N

Það er geislaspilari í bílnum og fronturinn var í hanskahólfinu. Það var látið vera, nýlegur Pioneer 3100 DEH.

EF þið sjáið einhvern róna með Marlboro sígarettu, með blá sólgleraugu og í flíspeysu og kannski að slá um sig með 500 króna seðli…, endilega sendið mér skilaboð eða hafið samband við Lögregluna,

Takk fyrir