Mig langar að kyrkja lyklaborðið og þá manneskju sem ákvað að hækka strætógjöldin. Ef ég þyrfti að fara eitthvert, segjum í kringluna, og ætti ekki strætómiða, myndu ferðirnar báðar leiðir kosta 440 krónur! Ætli strætóbílstjórinn taki við seðli?

Þetta er orðið alltof dýrt og sýnir það best hversu illa Strætó bs er rekið. Ég ætla aldrei að taka strætó aftur þótt mér væri borgaður 200 kall fyrir það!<br><br><a href="http://www.hvurslags.blogspot.com">Vits er þörf
þeim er víða ratar;
dælt er heima hvað.
Að augabragði verður
sá er ekki kann
og með snotrum situr.

<i>Hávamál</i></a