Í dag, 4.12.2002 kl. 19:30 verða haldnir góðgerðartónleikar í húsakynnum Menntaskólans við Sund. Þar munu fram koma, Alphalon, Lúna, Kaya, Siggi Á og síðast en ekki síst Úlpa. Sem fyrr segir hefst dagskráin kl. 19:30 og stendur til kl. 23:00. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við Skólafélag MS, sem útvegar húsnæði og fleira og Mæðrastyrksnefnd sem mun kaupa mat fyrir allan ágóðann og dreifa til þeirra sem minna mega sín í jólamánuðinum. Allir sem að atburðinum koma gefa vinnu sína. Látum nú gott af okkur leiða og sjáum frábæra tónleika í leiðinni. Miðaverð er 1000 krónur og selt er við innganginn.