Ég veit ekki á hvern ég á að senda þetta þannig að posta þessu bara hér.

Ég rakst á bug í stiga kerfinu á huga. Eins og þið vitið þá er 1 stig fyrir að logga sig inn og ég fann leið til að misnota þetta. Ef að maður er með opin skilaboð í glugganum og gerir útskrá er maður sjálfkrafa skráður inn aftur, þannig að það er 1 stig fyrir hvert skipti sem maður smellir á útskrá.

Nú veit ég ekki hvort að þetta er þekkt villa, en ég vildi bara benda á þetta ef menn vilja laga þetta.