106 - Death Lýsing:
Á meðan foreldrar þeirra eru utanbæjar að mótmæla uppáhaldsþættinum þeirra, Terrence og Phillip, kemur Dauðinn í heimsókn til South Parks.

Persónur í þessum þætti:
Stanley Marsh, Randy Marsh, Sharon Marsh, Shelley Marsh, “Afi” Marsh, Terrence, Phillip, Kyle Brofslovski, Ike Moisha Brofslovski, Sheila Brofslovski, Eric Theodore Cartman, Wendy Testaburger, Clyde, Pip, Tokin, Butters, Terrence Mephesto, Bebe, Mr. Garrison, Mr Hat, Kenny McCormick, Chef, Jesus Christ, The Mayor, John Warsaw (forstjóri Cartoon Central), Death, Afi afa Stans.

Hvernig Kenny deyr:
Dauðinn snertir hann eftir æsilegan eltingaleik.

Dulin atriði:
Þegar Stan lítur á eldhúsklukkuna, sýnast bara stafirnir 8 og 12.
Eftir að afi Stans skýtur myndina, sést engin ummerki að myndina hafi verið þarna.
Allir hafa eins sjónvarp.
Kökubakkinn sem Mrs Cartman er að halda á, er notaður í mörgum öðrum South Park þáttum.
——-
Á meðan Mr. Garrison er að tala um hve mikill klósetthúmor er í Terrence og Phillips þáttunum, er hægt að sjá eftirfarandi texta á töflunni:

Properties of a typical white dwarf:
Mass: 1.0m
Surface Temp: 10,000 K
Diameter: 0.008D (1.0D)
Density: 5x105 6
Luminosity: 2x1031 erg/sec (0.005L)

——
Þegar Shelly er að tala við Stan um hvað hann sé að gera við afa, Terrence og Phillip hætta skyndilega að tala.
Frelsisstyttan blikkar augunum.
Áður en forstjóri Cartoon Centrals byrjar að tala, Mrs Cartman og Sharon Marsh eru hlekkjaðar við vegginn, hinsvegar á meðan hann tala, eru þær fyrir framan hann, en þegar hann fer inn í húsið, eru þær aftur hlekkjaðar við vegginn.
Eftir tilkynninguna, Mrs Cartman segir Carol, en fyrsta nafn mömmu Kyles er Sheila.
Síminn í herbergi Stans er ekki í sambandi; samt sem áður hringir hann í mömmu sína.

Uppáhaldsatriðið mitt:
Þegar Stan fer yfir heimilisverkin á miðanum og sér “Kill Grampa” í neðstu línunni skrifað illa.