606 - Professor Chaos Strákarnir reka Butters úr vinahópnum og ákveða að opna vinastöðuna til umsóknar og ætla að velja nýjan vin í staðinn fyrir Kenny. Margir sækja um(hvort sem þeir vildu eða ekki) og þurfa þeir að prófa hvern og einn þeirra til að ákveða hver á að hljóta “starfið”. Butters er sár út af því að vera rekinn úr vinahópnum og fer út í að vera illmenni og ætlar að eyðileggja ánægjuna fyrir öllum í heiminum.

Persónur í þessum þætti:
Stanley Marsh, Eric Theodore Cartman, Kyle Brofslovski, Butters Studge, Clyde, Wendy Testaburger, Timmy, Bebe Stevens, Jimmy Swanson, Luigi(nefndur Loogie í þætti 402), Damien, Towelie, Filmore Anderson, Tokin William, Craig, Pip, Jason, Tweek Tweak, Dog Poo, Ike Moisha Brofslovski, Dougie, Derp, Linda Studge, Chris Studge, Diane Choksondik, “Minions of Chaos”, Jerome Chef McElroy, Herbert Garrison, Mr. Hat, Jimbo Kern, Officer Barbrady, Mayor McDaniels.

Dulin atriði:
Í South Park Times eru öll orðin í greinartitlum með stórum staf (fyrir utan eina grein, sjá neðan).
Hægt er að sjá greinarnar “Afghanistan! Tajikastan! Pakistan … damn those “Stans”!”, “North Park Ratings Sky Rocket”, “Flying Frogs Put This Years Crops In Danger” og “Young Girl's Shoe Found After Three Years of Difficult Searching”.

Uppáhaldsatriðið mitt:
Þegar Professor Chaos ætlar að drekkja jörðinni.