604 - The Terrance & Phillip Movie Trailer Ný bíómynd eftir Terrance & Phillip fer að koma út og vilja strákarnir endilega sjá
sýnishornið af henni. Gallinn er bara sá að strákarnir neyðast til að horfa á Russell
Crowe þátt til að sjá það. Eftir smá stund eyðileggst sjónvarpið og þurfa þeir að fara í
önnur hús til að horfa á auglýsingarnar. Þeir lenda síðan í miklum hremmingum hvert
sem þeir fara en þeir reyna að finna lausnir á þeim öllum því að þeir verða að sjá
frumsýninguna á sýnishorninu.

Persónur í þessum þætti:
Stanley Marsh, Kyle Brofslovski, Butters Studge, Eric Theodore Cartman, Russell
Crowe, Tugger, Shelley Marsh, Ike Moisha Brofslovski, Gerald Brofslovski, Jerome
Chef McElroy, Klipparinn, Jimbo Kern, Ned Grublanzky, Herbert Garrison,
barþjónninn, Gamla fólkið í Shady Acres elliheimilinu, Terrance, Phillip.

Athugasemdir varðandi þáttinn:
Það voru alvöru auglýsingahlé þegar það voru auglýsingahlé í Russell Crowe
þættinum.

Dulin atriði:
Gamla fólkið á Shady Acres elliheimilinu voru að horfa á Puppies around the world,
sama þátt og strákarnir horfa á í næsta þætti.

Uppáhaldsatriðið mitt:
Terrance & Phillip sýnishornið.