Ég las þetta um daginn í Fréttablaðinu og persónulega fannst mér þetta vera mjög furðulegt og skemmdi dálítið Simpsons fyrir mér. Það hefur komið út að í komandi þáttum mun einhver persónan koma út úr skápnum, það er sagt að sú sem það á að vera mun vera sú eina sanna Patty sem allir náttúrulega vita er tengdarsystir Hómers. Það sem mér brá virkilega við var að Hómer á víst að gefa Patty og einhverja aðra konu saman, hver sem það nú verður.

Þetta hefur komið nokkuð mikið á óvart í Bandaríkjunum þar sem foreldrasamtök hafa orðið gjörsamlega brjáluð yfir þessu, segja að með því að gera þetta eru þau að auglýsa hjónabönd samkynhneigðra á National Tv.

Það er nú ekki víst að þessi þáttur mun vera leyfður en hann hefur nú fengið nokkuð góðar viðtökur hjá homma og lesbíu samtökum.

Ég veit ekki um ykkur en mér finnst þetta persónulega vera bara nokkuð mikill óþarfi. Ég er nú ekkert á móti samkynhneigðum eða neitt þannig en mér finnst þetta bara vera soldið langt gengið. En hvað finnst ykkur ?