The Simpsons Eftir HrannarM Ég ætla að skrifa grein þar sem ég kem með helstu upplýsingar um Hómer, Marge, Bart, Lísu og Maggie. Þetta tekur allt tíma, en það er ekki eins og ég hafi eitthvað betra að gera :)
Ég veit að þetta er ekki fyrsta lýsingin og vonandi ekki sú síðasta en ég ætla að gera mitt bezta við að gera þetta að skemmtilegu og fræðandi lesefni. Jæja, þá er komið að þér að lesa og mér að skrifa.
Njótið vel.


Hómer Jay Simpson. Pabbinn í Simpson fjölskyldunni og er 36 ára að aldri. Hann vinnur sem öryggismaður á Svæði 7.G í kjarnorkuverinu í Springfield, bænum sem þau búa í. Eftir vinnu fer hann heim og borðar og svo yfirleitt á Moe´s barinn til að slaka á og drekka, eða fer bara að horfa á sjónvarpið heima hjá sér. Barinn er samt yfirleitt fyrir valinu. Hómer lentir oft í vandræðum, t.d. þegar hann og fjölskyldan flúðu Springfield útaf hershöfðingja sem ætlaði að fara í einvígi við hann, líka þegar hann lofaði pabba sínum Abe nýra en stakk af. Ég gæti talið endalaust áfram en höldum áfram með Hómer. Hómer er 115-130 kílógramma þungur og er uppáhaldsmatur hans steikur, hamborgarar, kleinuhringir og auðvitað eeeeefffftttiiirrrrrrééééttir……
Hómer drekkur mest Duff bjór (svar við eitthverju? :D) en ef hann er ekki til þá bara bjór, má segja að hann sé allæta á flestan mat, en samt auðvitað eitthver matur sem hann snertir ekki. Móðir Hómers heitir Mona en er hún eftirlýst út um allt. Hálf-bróðir hans heitir Herb Powell og hefur komið fram í einum þætti.


Marge Bouvier Simpson. Vinnur heima og gerir allt á heimilinu, eins og flestar mæður hvort sem þær vinni heima eður ei. Marge er þekktust fyrir sitt bláa hár sem er (alltof)langt. Marge er alltaf upptekin við heimilisstörfin eða að finna sér nýja vini, því staðreyndin er að hún á mjög fáa, eiginlega enga. Hún er mikið í því að elstast við Bart og talandi við Lísu. Marge er 34 ára gömul og hefur unnið við margt í gegnum árin, en ekkert langtíma. Hún hefur t.d. unnið sem lögreglukona, fasteignasali, leikkona og í kjanrorkuverinu. Hún hefur áhuga á að baka, nöldra :), gefa nágrönnum góð ráð og að þrífa. Hún er mjög þekkt fyrir sína nöldur rödd.


Bart Simpson. Hver þekkir ekki Bart? Fyrir utan Hómer þá er Bart minn uppáhalds teiknimynda karakter. Bart hefur gert svo margt og næ ég aldrei að nefna allt, en hérna kemur allavega eitthvað.
Bart einnig þekktur sem El Bartø. Bart er þekktur fyrir að koma sér alltaf í vændræði og í köst við lögin. Hann er 10 fjórða bekks nemandi í “Springfield Grunnskólanum” þar sem Skinner er við völd. Skinner og Bart hafa verið “óvinir” lengi, en einu sinni fékk Bart Skinner óvart rekinn og þá urðu þeir vinir. Það hefur alltaf verið frekar vingott með þeim síðan. Bart er þekktur fyrir “I didn´t do it” sem “The I didn´t do it boy”. Bart fékk vinnu hjá Krusty sem aðstoðarmaður hans. Þetta er eins og ég myndi fá vinnu hjá James Hetfield eða eitthverjum af meðlimum Metallica því að krusty var átrúnaðargoð Barts og hafði verið lengi og er enn. Krusty var í vandræðum einu sinni þegar einn af leikurum hans hafði veikst. Hann fékk bart til að leika með sér eitt lítið atriði, það eina sem bart þurfti að gera var að koma inn og segja “I didn´t do it” og allir myndu hlægja. Atriðið mistókst hinsvegar á þann hátt að Bart kom inn og skemmdi leikmyndina, hún datt öll niður og svo stóð hann fyrir framan 100manns og sagði “I didn´t do it” allir hlógu og Bart varð frægur, kom fram í Conan O´Brian og fékk símalínu “The Bart Hot Line” og geisladisk með “The I didn´t do it song” og fleira. Bart fann halastjörnu sem næstum eyðilagði Springfield og allt fólk sem býr þar. Bezti vinur Barts er Milhouse. Bart er án efa ein fyndnasta persóna sem hefur eitthvern tíman verið teiknuð.


Lísa Simpson. Gáfaða barnið í fjölskyldunni og líka sú mjúsíkalska. Lísa er miðbarnið og án efa mjög vel gefið barn. Hún er grænmetisæta og það getur Hómer ekki skilið. Bart gerir stanslaust grín að henni. Lísa er 8 ára og er í 2 bekk. Hún elskar að hlusta á Jazz og spila hann á saxafóninn sinn, hún og Bart horfa líka mikið/alltaf á Itchy & Scratchy.

Maggie Simpson. Maggie er yngsta barnið, aðeins 1 árs. Hún gerir ekki margt og afþví mun þetta ekki verða löng lýsing. Hún dettur mikið, sýgur snuðið sitt og horfir á sjónvarpið. Í einum þættinum er hún sögð vera dóttir geimvera. Hún er samt þekktust fyrir að hafa skotið Mr.Burns þegar hann ætlaði að ræna nammi af henni. Fyrsta orð hennar var “Daddy!”


Ég vona að þetta hafi verið skemmtilegt fyrir ykkur, ég gerði mitt bezta og vonandi var þetta ágætur lestur.

Takk fyrir í bili
HrannarM.