Jæææja, þá er leik lokið.

Podolski skoraði eina mark leiksins á 57. mínútu og var það úr aukaspyrnu. Boltinn skaust í löppina á Robbie Keane og breytti um stefnu iog hafði því Shay Given engan möguleika á því að verja.

Ekki alltof mikið um dauða, dauða færi.

Klose skallaði í slánna á 70. mín eða svo. Eftir venjulegan leiktíma setti Schweinsteiger boltann í stöngina úr aukaspyrnu.

Annars skemmtilegur leikur, hefði viljað sjá mína menn setja fleiri mörk en það sem skiptir máli er að við fengum 3 stig ;)

Hvað finnst ykkur hinum svo?