Að búa til glæpamenn Hún heitir Alicia Smith.

Hún hóf afplánun 27. október 2008 og mun ljúka henni 23. september 2012. Möguleiki er á skilorðsumsókn í fyrsta lagi nóvember 2009. Samt ekkert rosalega líklegt að það fáist.

Og glæpurinn: Possession of Marijuana within 1000 feet of a school.


Þetta er ekkert sérstakt case. Var bara að browsa gegnum databeisið yfir fanga í oklahoma að rannsaka hvað fólk væri venjulega að fá fyrir “possession” þarna, en það er að eiga skammta af efninu til einkanota. Þetta mál er mjög venjulegt og fólk er yfirleitt að fá 4-6 ár fyrir svona.

Á Íslandi væri þetta sekt eða í versta falli 3 mánuðir skilorðsbundnir. Í Hollandi er þetta ekki einu sinni ólöglegt.

Þessi stelpa er hinsvegar stimpluð glæpamaður restina af lífi sínu. Hún mun kynnast alvöru glæpamönnum í fangelsinu og svo framvegis.

Og afleiðingarnar: Í Bandaríkjunum er dóp orðið að samfélagslegu vandamáli. Fjöldi fanga miðað við fjölda íbúa er meiri en í nokkru öðru siðmenntuðu landi. Morðatíðni er um 10fallt hærri en í meðal evrópulandi og önnur afbrot margfalt algengari líka.

Samt virðist umræðan á Íslandi núna snúast um það hvað er slæmt að nauðgarar sitji “bara” inni í nokkur ár, lífstíðarfangelsi sé að meðaltali 16 ár og dópistar sem eru teknir ítrekað með efni fá yfirleitt nokra mánuði skilorðsbundna.