Fréttablaðið, Fös. 18. jan.
Davíð: ,,Björn þarf að ákveða sig næstu daga"
Miðstjórn sjálfstæðisflokksins samþykkti í dag að breyta prófkjörsreglum flokksins þannig að leiðtogaprófkjör geti farið fram um efsta sæti á lista flokksins í borgarstjórnarkosningum í vor. Davíð Oddsson segir að Björn Bjarnason verði að gera upp við sig á næstu dögum hvort hann fari fram.

Þetta kom fram í viðtali RÚV við Davíð þar sem hann sagðist jafnframt ekki ætla að taka opinbera afstöðu í leiðtogaprófkjörinu heldur aðeins taka afstöðu með atkvæði sínu eins og aðrir.

Auk þess að breyta reglunum þannig að leiðtogaprófkjör geti farið fram ákvað miðstjórnin að viðhafa sameiginlegt prófkjör vegna Reykjavíkurkjördæmanna beggja fyrir alþingiskosningarnar vorið 2003.