Jæja þá þessu Mini Móti lokið og þá fer maður að huga að því næsta sem verður annað hvort fyrstu eða aðra helgina í janúar. Það er reyndar eitt sem er að pirra okkur mótshaldarana er fólkið sem skráir sig og hefur ekki fyrir því að afboða sig ef það ætlar ekki að mæta. Það er mjög mikil bummer þegar stjórnandi mætir og kemst svo að því að meiri hluti spilarana vantar. En nóg um það fyrir þá sem vilja vera stjórnendur á næsta Mini Móti er að senda mér PM með eftirfarandi upplýsingum:

Kerfi/Spil:
Nafn Stjórnanda:
Aldurstakmark:
Reykingapásur:
Lýsing: Stutt lýsing á ævintýri eða heim sem notað er.

Ath að við getum mest verið með sex stjórnendur svo fyrstir koma fyrstir fá.