Vegna brottflutnings og scheduling vandamála hjá fólki í hópnum mínum er ég að leita eftir nýju blóði í spilagrúppuna mína. Við erum 4 eftir - stefnir í 3 þar sem einn í viðbót er líklegast að flytja af landi brott innan tíðar - og svo einn “draugur”. Okkur vantar því a.m.k. einn til viðbótar, jafnvel 2.
Hvar erum við?: Reykjavík
Á hvaða aldri erum við?: 28-33
Hvað spilum við?: Aðallega GURPS og Fuzion, smá d20 og svo er ég að vinna í að innleiða hjá hópnum Mutants & Masterminds.
Við leitum að: Fólki á aldrinum 23+ með a.m.k. einhverja reynslu af spilamennsku og sem er ekki á kafi í of mörgum öðrum hobby-um eða spilahópum, eða með vinnu- eða skólaáætlun sem myndi hindra reglulegar mætingar.
Hvenær spilum við?: Annan hvern sunnudag að staðaldri, stundum oftar eftir því hvernig tíma menn hafa.

Ef einhverjir hafa áhuga, hafið samband við mig hér á Huga eða í póstfang runarm@itn.is. Einnig ef einhver veit af fólki sem gæti haft áhuga, endilega bendið viðkomandi á að hafa samband.

R.