Hæ fólk,

Mig áskotnaðist auður í gær - ég fann upprunalega rauða Basic D&D kassann í Góðan Hirðinum… Mitt gamla rólpleijara hjarta tók kipp og hef ég ákveðið að halda nostalgíu kvöld á næstunni… Reglur sem meika ekkert sens og pure dungeon bashing galour!

ENN MIG BRÁÐVANTAR BLÁA EXPERT KASSANN… Á einhver þetta heima hjá sér? Ég myndi borga penge fyrir kassann. Ég hef einnig áhuga á companion, master og immortal kössunum ef þeir finnast líka.

Í von um góð svör

El Sneplos De Grande
Búhahahaha!