Sorcery and Steam frá Fantasy Flight er freebie vikunnar á DriveThruRPG.com en það er verulega asnalegur galli á pdf-unni sem felst í því að í character kaflanum eru myndir innan um class lýsingarnar og þær blæða yfir textann á nokkrum stöðum svo ekki er hægt að lesa hvaða class skills sumir klassar eru með o.s.frv.

Mig langar aðallega að vita hvort þessi sami galli er á pappírs útgáfunni af bókinni og ef svo er ekki hvort einhver sem á hana sé til í að fylla í eyðurnar fyrir mig.
Villurnar eru á síðum 33, 45, 47 og 52 - ef einhver getur hjálpað mér, sendið inn svar hér eða skilaboð beint á mig.

Ég er búinn að melda gallann til DriveThruRPG en er nokk viss um að þeir geta lítið gert vilji þeir yfir höfuð taka á þessu sjálfir.

Rúnar M.