Kannski ekkert rosalega merkilegt sem gerðist en við hlógum lengi.

Við vorum 2 eða 3 að spila löggur í einhverju nútíma spili og vorum að rannsaka morð. Einhverjar öryggismyndavélar voru hinumegin við götuna á einhverju millaheimili. Við sendum einhverja lögregluþjóna á eftir þeim og horfum á teipið. Stjórnandinn lýsir því sem við sjáum og endar svo á því að lýsa því þegar lögregluþjónninn bankar uppa og biður um teipið. Það sem stjórnandinn lýsir næst var vægast sagt skrýtið því gaurinn sem við sjáum á myndbandinu fer inn og kemur út með myndbandið og réttir lögregluþjóninum það??? Ég var sá eini sem kveikti á strax og sagði hikandi og hissa “sjáum við gaurinn rétta lögregluþjóninum myndbandið sem við erum að horfa á núna?” Þá föttuðu hinir þetta og sprungu úr hlátri meðan stjórnandinn stóð þarna eins og illa gerður hlutur. Doh!<br><br>Only two things are infinite, the universe and human stupidity, and I'm not sure about the former.

Albert Einstein
“Where is the Bathroom?” “What room?”