Skráning spilara á Mini Mótið 3. Nóv er hafin í Nexus. Mótið verður með soldið öðru sniði að þessu sinni þar sem spilarar skrá sig ekki á eitthvað ákveðið kerfi. Heldur er þessu skipt niður í Fantasy,Sci-Fi/Ofurhetjur og Horror ef það er eitthvað sem spilarar vildu helst spila eða alls ekki þá geta þeir sett það í athugasemdir á skráningarblaðinu.Fólk verður að mæta með svolitlum opnum hug þar sem það er smá óvissa fyrir spilara hvaða spil/kerfi stjórnandinn kemur með.

Það kostar 500kr að skrá sig á mótið og byrjað er að spila kl:18:00 til 23:30 sum borð kannski lengur.