Það er alveg greinilegt að spunaspilsáhugamenn vilja mót og það helst í gær. Undirtektirnar hafa verið ótrúlega góðar og skráning hefur gengið vonum framar og hafa allar stöður fyrir stjórnendur verið fylltar og það tveim vikum fyrir áætlaðan tíma.

Vegna þessa hefur verið ákveðið að skrá spilara mun fyrr. Mun skráning spilara hefjast 9. október og vera alla virka daga frá kl 20:00-22:00.

Fólk úti á landi getur hringt í Nexus s.552-9011 og pantað miða eða einfaldlega í gegnum tölvupóst “steinerinn@hugi.is”. Athugið að þessi skráningaraðferð er einungis fyrir landsbyggðina.

Látum þetta nægja að sinni.

Kærar RPG kveðjur,
-Steini
Kveðja,