Jæja ég verð að koma þessari frá mér eftir að hafa lesið um afrek drekastelpunnar.

Einu sinni var ég í hóp sem var að spila Dark Sun (gamla), stjórnandinn var voða hrifinn af blóði og þvi var ekkert voða mikið roleplay í gangi nema þegar kom að því að skipta upp þýfinu. En jæja honum tókst loks að koma okkur inn í Campaign þar sem við áttum að mæta “hordes of undead” og alls kyns viðbjóði, nema hvað, ég var álfur og cn eiturbyrlari og fór bara með til að ná mér í þýfi og svo þegar ég kom niður í blessað virki vonda undead drekans, Dregoth, þá lenti ég í miklum vandræðum því undead eru ekket voðalega næmir fyrir eitri og flestar mínar árásir enduðu með hröðum flótta undan þeim. En þetta var útúrdúr. Na´lið er að ég var með þrem fightrum í hóp, einum human, einum mule og svo einum Thri Kreen sem kallaði sig Kókó, svona eins og dragdrottningin, nema hvað hann rólaði thri kreeninn eins human með skordýrafés og helling af útlimum. Jæja við komum að þessari stóru holu og alveg sléttir veggir og bara engin leið niður, við köstum steini niður og heyrum han ekki lenda því þessi “hola” náði heila mílu niður í jörðina. Ég fer nú að hugsa og rembist við að láta mér deta eitthvað í hug, en ekkert gerist, vinur minn sem var mule, og er mjög skapstór, verður fúll og hoppar niður ! HANN LIFIR FALLIÐ NÆSTUM AF, það sem drap hann var ekki skortur á hp, heldur það að ef hann missir meira en 50 hp í einu þá þarf hann (eða þurfti frekar) að gera system shock save, sem hann klúðraði fyrir einbera tilviljun. Ekki nóg með það, heldur hoppar human dúddinn líka á eftir honum og verður að klessu, síðan þegar ég komst niður eftir langt þóf með dragqueen skordýrið á eftir mér, þá kom í ljós að að humaninn var með CLOAK OF THE BAT á öxlunum og hefði þurft að segja eitt einasta orð til að komast niður ómeiddur :) Mórallinn með þessari sögu er sá að maður á ekki að roleplaya sig alveg heimskan :)